Íþróttastyrkir fyrir krakka og unglinga

Íþróttastyrkir fyrir krakka og unglinga
Laugardaginn 1.október var opnað fyrir umsóknir um niðurgreiðslu á þátttökugjöldum barna og unglinga, 6- 16 ára, hjá íþrótta- og tómstundafélögum bæjarins. Opið verður fyrir umsóknir til og með 15.október.

Sækja verður um niðurgreiðsluna í gegnum íbúagáttina.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér reglurnar um niðurgreiðslur íþróttastyrkja.

Nánari upplýsingar gefur þjónustuver bæjarins í síma 585 5500 eða á netfangið hafnarfjordur@hafnarfjordur.is


Kv. SP, BS og JD